|
Fákaflatir |
|
20.09.2011 14:03Skarapatunga 2011Síðustu helgi fórum við í stóðsmölun og stóðréttir í Skarapatungurétt. Þátttakendur voru: ![]() Brynjar og Ingibjörg á Fákaflötum, Óskar og Bára í Borgarbæli og Doddi og Anna í Terru Við tókum öll hross með okkur úr Klofa og í bæinn helgina áður og brunuðum svo með þau norður á Blönduós á föstudaginn var. Gist var í sumarhúsi í Glaðheimum á bökkum Blöndu. Kl. 09.00 á laugardagsmorgni var haldið að Strjúgstöðum í Langadal þar sem túrinn hófst með því að riðið var í gegnum Strjúgsskarð og yfir í Laxárdalinn. Veðrið var frábært og þátttakendur fjölmargir. ![]() Riðið upp í Strjúgskarð. Langidalur við Strjúgstaði í baksýn. Ingibjörg á Bjarma. ![]() Laxárdalurinn er mjög fallegur og ósnortinn en enginn vegur liggur um innri hluta hans, aðeins fínar reiðleiðir. Riðið var í rólegheitum niður að Kirkjuskarði þar sem stóðinu var safnað saman. ![]() Hér má sjá stóðið rekið inn í rétt. Síðan var gert langt og gott kaffihlé með söng, dans, spjalli og almennri gleði. ![]() Sungið og trallað undir stjórn hljóðfæraleikara og margra góðra söngvara. Einnig var boðið upp á nýtt skemmtiatriði sem aldrei hefur sést áður í Skrapatungu. Þar var um var að ræða skemmtilegt dansatriði eða dansgjörning í boði Óskars og Halldórs félaga hans. Eftir gott stopp var lagt á aftur, stóðinu hleypt út og riðið áleiðis í Skrapatungurétt. ![]() Hér er stóðið lagt af stað og fjölmargir reiðmenn sjá um að koma því til skila í Skrapatungurétt. Ingibjörg fylgir á Bjarma og teymir Húna. Við riðum svo að bænum Lækjardal þar sem hrossin fengu kærkomna hvíld í góðum haga eftir 28 km reið. Við héldum hins vegar heim í bústað þar sem farið í heita pottinn, grillað og djammað áður en haldið var á dansleik með Pöpunum í félagsheimilinu á Blönduósi. ![]() Glaður hópur á leið á Papaballið. Eftir góðan morgunverð daginn eftir var svo pakkað saman og haldið í stóðréttir. Eftir stutt stopp þar, spjall og smá kaffihressingu, voru hestarnir settir á kerru og brunað í bæinn. Það var þó nokkuð spennandi og taugatrekkjandi ferð þar sem að óveður og mikið rok var undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi og ekki gaman að vera þar á ferð með hesta á kerru. Allir komust þó heilir heim þreyttir en glaðir eftir frábæra stóðréttarferð. Þegar er búið að bóka gistingu að ári! Fleiri myndir úr stóðréttarferðinni má sjá í myndaalbúminu. Skrifað af Brynjari 07.09.2011 14:26Folöld 2011Í fyrsta skipti, og líklega það síðasta, þá fengum við hjónin á Fákaflötum tvö folöld í ár. Fáfnir frá Fákaflötum: Í maílok kom hún Hrafntinna frá Þóreyjarnúpi með einlitann brúnan hest undan Álfsteini frá Hvolsvelli sem áður hefur verið gerð grein fyrir. Hann hlaut nafnir Fáfnir og er stór og myndarlegur eins og sjá má á þessari mynd. Ísis frá Fákaflötum. Það var svo 24. júlí sem Gleði frá Helguhvammi kastaði jarpstjörnóttu merfolaldi undan Prata frá Borg sem fékk nafnið Ísis í höfuðið á egypskri frjósemisgyðju. Hún var ósköp lítil og nett þegar þessi mynd var tekin af henni með mömmu sinni daginn eftir köstun. Í myndaalbúminu má sjá fleiri myndir af þeim systkinum og líka myndir af hálfsystur Fáfnis henni Ísold sem er 2ja vetra undan Hrafntinnu og Þristi frá Feti. Skrifað af Brynjari 22.08.2011 21:11Hestaferð 18.-20. ágúst.Nokkuð hlé hefur verið á skrifum hér en stefnt að því að taka upp þráðinn að nýju. Eitt og annað hefur drifið á dagana í sveitinni frá sleppitúrnum sem síðast var skrifað um. Má þar nefna, heimsóknir vina og ættingja, Klofarokk, líflega verslunarmannahelgi, stutta og langa hestatúra auk þess sem tvö folöld bættust við Fákaflatastóðið. Nánar um það síðar. Ferðin var frábær í alla staði. Veðrið gott allan tímann, hestarnir aldrei betri og félagsskapurinn eins og hann gerist bestur. Skrifað af Brynjari
Flettingar í dag: 12 Gestir í dag: 5 Flettingar í gær: 31 Gestir í gær: 10 Samtals flettingar: 48901 Samtals gestir: 14082 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 03:34:54 |
Eldra efni
Tenglar |